Í þessari persónuverndarstefnu Porta er lýst hvernig vinnslu persónuupplýsinga er háttað. Stefnan gildir um vefsíðuna portamidar.is og þjónustu okkar. Hér kemur fram hvernig við söfnum, notum, varðveitum og, eftir atvikum, miðlum persónuupplýsingum um þig þegar þú notar þjónustu okkar.
Stefnan á meðal annars við þegar þú:
- heimsækir vefsíðuna okkar á https://www.portamidar.is eða aðra vefi sem vísa í þessa persónuverndarstefnu;
- notar kerfi Porta, þar á meðal þegar þú sendir okkur upplýsingar um viðburð, umfang hans og hvaða aðstoð þú vilt fá;
- nýtir þjónustu okkar við uppsetningu skipulagseininga, viðburða, miðaflæðis, aðganga fyrir teymi, innritun eða yfirsýn yfir viðburði.
Ábyrgðaraðili
Porta ber ábyrgð á þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er í þessari stefnu, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Fyrirspurnir um persónuvernd, skilmála eða réttindi þín má senda á skilmalar@portamidar.is.
Spurningar um stefnuna
Við hvetjum þig til að lesa stefnuna vel og kynna þér efni hennar. Við berum ábyrgð á meðferð þeirra persónuupplýsinga sem við öflum. Ef þú ert ósammála því sem kemur fram í persónuverndarstefnu okkar biðjum við þig um að nota ekki þjónustuna. Ef frekari spurningar vakna má hafa samband við okkur á skilmalar@portamidar.is.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Í hvert sinn sem þú heimsækir eða notar vefsíðuna okkar, kerfi okkar eða aðra þjónustu sem við bjóðum upp á kann að vera að við söfnum persónuupplýsingum um þig. Við söfnum fyrst og fremst persónuupplýsingum sem þú lætur okkur í té, svo sem:
- nöfnum einstaklinga og/eða lögaðila;
- netföngum, símanúmerum og heimilisföngum;
- upplýsingum um viðburði, miðakaup, miða, innritun og samskipti við okkur;
- tæknilegum upplýsingum sem verða til þegar þjónustan er notuð, svo sem upplýsingum um villur, öryggisatvik og notkun kerfisins.
Söfnum við viðkvæmum persónuupplýsingum?
Í einhverjum tilvikum kunna tilteknar upplýsingar að teljast sérstaklega viðkvæmar, til dæmis upplýsingar um trúarbrögð, heilsu, stjórnmálaskoðanir eða kynhneigð. Við óskum ekki eftir slíkum upplýsingum og geymum þær ekki nema það sé nauðsynlegt vegna þjónustu sem þú biður sérstaklega um og heimilt samkvæmt lögum.
Hvernig vinnum við persónuupplýsingar?
Við vinnum persónuupplýsingar til að:
- veita, reka og bæta þjónustu okkar;
- setja upp og halda utan um viðburði, miða og aðganga;
- senda nauðsynlegar tilkynningar, miða og þjónustuskilaboð;
- svara fyrirspurnum og veita aðstoð;
- uppfylla lagaskyldur og samningsskyldur;
- koma í veg fyrir misnotkun, svik og öryggisbrot.
Lagagrundvöllur vinnslu
Við vinnum persónuupplýsingar aðeins þegar við höfum heimild til þess samkvæmt lögum. Vinnslan getur byggst á samþykki þínu, því að vinnslan sé nauðsynleg til að efna samning eða gera ráðstafanir áður en samningur er gerður, lagaskyldu sem hvílir á okkur eða lögmætum hagsmunum okkar af því að reka örugga og áreiðanlega þjónustu.
Hvenær deilum við upplýsingum með þriðja aðila?
Við deilum persónuupplýsingum aðeins þegar það er nauðsynlegt vegna þjónustunnar, heimilt samkvæmt lögum eða þú hefur samþykkt það. Þetta getur átt við um greiðslumiðlanir, tölvupóst- og SMS-þjónustur, hýsingaraðila, tæknilega þjónustuaðila, viðburðarskipuleggjendur og opinbera aðila þegar lagaskylda krefst þess. Við seljum ekki persónuupplýsingar.
Hvernig höldum við upplýsingunum öruggum?
Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðingu. Engin rafræn þjónusta er þó fullkomlega örugg og því getum við ekki ábyrgst að óviðkomandi aðilar geti aldrei komist yfir upplýsingar með ólögmætum hætti.
Fótspor og sambærileg tækni
Vefsíðan kann að nota nauðsynleg fótspor eða sambærilega tækni til að þjónustan virki rétt, til dæmis vegna innskráningar, öryggis og grunnstillinga. Ef við notum valkvæð fótspor, til dæmis fyrir greiningar eða markaðssetningu, munum við upplýsa um það og óska eftir samþykki þar sem það á við.
Hve lengi geymum við persónuupplýsingar?
Við geymum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar, samningssamband, lagaskyldur, bókhaldsskyldu, öryggissjónarmið eða réttmæta hagsmuni. Almennt geymum við upplýsingar ekki lengur en í tvö ár nema lög eða sérstakar aðstæður krefjist lengri varðveislu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar við vinnum um þig og hvernig vinnslunni er háttað. Eftir atvikum getur þú einnig átt rétt á að fá aðgang að upplýsingunum, láta leiðrétta þær, fá þeim eytt, takmarka vinnslu þeirra, andmæla vinnslu eða fá afrit af upplýsingum sem þú hefur látið okkur í té á tölvutæku formi.
Beiðnir um réttindi má senda á skilmalar@portamidar.is. Ef þú telur að vinnsla okkar á persónuupplýsingum brjóti gegn persónuverndarlögum getur þú lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgðaraðilar eru: 280199-3469, 191000-2180, 060802-2890